![]()
Vefmiðillinn Islanders hélt upp á ársafmæli sitt með pompi og prakt þegar opnuð var sýningin Ceci n'est pas un meuble í tengslum við HönnunarMars. Í samvinnu við Islanders fengu 12 myndlistarmenn sama húsgagnið í hendur og unnu úr því myndlistaverk. Sýningin opnaði á fimmtudagskvöldið í víðfrægu húsi á Freyjugötu 41, betur þekktu sem Ásmundarsalur, þar sem sýningin stendur fram á daginn í dag.